Birkiholtið

 
 

Fjölskyldan ákvað í sameiningu að fá sér síðu ... alla vega stór partur af fjölskyldunni ... okei ég (Bjarki) ákvað að setja upp síðu. Síðu þar sem ég get montað mig af minni undurfallegu verðandi konu (Tinna) og fallegustu stelpu sem nokkurn tíman hefur komið í þennan heim (Ónefnd Bjarkadóttir). Auðvitað má svo ekki gleyma Tuma hundinum okkar sem kemur okkur á óvart á einhvern hátt á hverjum einasta degi.


Hérna er meiningin að birta myndasöfn, kvikmyndir, hljóðskrár og blaður frá meðlimum fjölskyldunnar ... líklega þó mest frá pabbanum í fjölskyldunni svona til að byrja með. Alla vega þangað til mér tekst að sannfæra mömmuna um að það sé ekkert mál að gera svona tölvudótarí. Held þetta sé fínt sem kynning í bili bara góða skemmtun og hafið það gott.

Velkomin í Birkiholtið